miðvikudagur, október 01, 2003

Nú er það orðið slæmt...
Skólabækurnar eru orðnar ofbeldisfullar..þeim finnst ég ekki sinna þeim nógu mikið, jarðvegsfræðibókin réðst á mig í gær og ég er með marða og bláa stórutá á hægri fæti..Ég er orðin hrædd, hvað ef þær ráðast á mig um miðja nótt og lemja mig í hausinn..þær eru kannski að skipuleggja launráð gegn mér..það er eins gott að ég leyfi þeim ekki að vera saman..jarðvegsfræðibókin er í töskunni, atferlisfræðibókin heima og kerfisfræði blómplanta er upp á Grenssás..hver veit kannski eru þær með gemsa...muhuhuhuh:(