föstudagur, apríl 02, 2004

Jæja ég viðukenni það ég er koffínfíkill.......bara verð að fá minn 1/2 l. af koffíngosdrykkjum á dag til að lifa daginn af .... en jæja ég er þó allavega bara búin að drekka PEPSI MAX en ekki ´KÓK .... var samt nálægt því að falla á miðvikudaginn en Snorri bjargaði mér...... Satt að segja finnst mér pepsímax ekkert gott og í raun kók ekki heldur..en það jafnast ekkert (okey kannski smá ýkjur hér) við tilfinninguna að fá sér sopa af búblandi koffíni með hádegismatnum... ...nammi, nammi þar til að vonda eftirbragðið kemur..................... skil mig stundum ekki


Það er mál að fagna í dag..því að ég var að klára eitt lokapróf í gær og gekk bara sæmilega..jibbý...þá get ég farið að skrifa málstofuritgerðina mína sem ég stefni á að skila fyrir páska

Annars fór ég í langþráða bíóferð með Hauki í gær....hann er nefninlega búin að reyna að bjóða mér í bíó í mánuð og minns hefur bara aldrei tíma....ekki skemmtileg kærasta hérna.....annars þá fórum við að ssjá ansi magnaða mynd...Passion of christ...hún er alsvakaleg og bara mjög góð.......mæli með henni...a.m.k. fyrir alla nema þá sem þola ekki mikið blóð og mikla þjáningu

En í kvöld verður gleðilegur viðburður ..Tequilaujamm með stelpunum jibbý