sunnudagur, apríl 04, 2004

Ég er alveg að verða græn hér á ritgerðarsmíðum....ekki það að ég sé að kvarta ...mér finnst þetta mjög skemmtilegt og allt það...en mig langar bara miklu meira að vera að gera eitthvað annað í þessu góða veðri..kannski að ég skelli mér bara í gögnutúr á eftir...annars held ég að það sé nú Snorra að þakka að geðheils mín sé í góðu standi...nú hversvegna gætu þið spurt ?? Hann nefinlega kynnti mig fyrir Launch.yahoo.com sem er þín eigin útvarpsstöð á netinu...og ef mér leiðist þá stilli ég bara á the very best of the 80's og þá er bara ekki hægt að vera súr að hlusta á þá tónlist...Madonna, Blondie, Wham, Duran Duran og U2 að ógleymdum Pet Shop boys og Michael Jackson...Versta við þetta er Þegar maður er upp í skóla í svaka fíling og byrjar að dilla sér í tölvustofunni og fólkið í kringum mann lítur á mann og sér skrítna stelpu dilla sér af æsingi yfir ritgerðarsmíðum.....
Annars er ég komin á skrið núna..næstum því 10 bls. komnar (jæja tvær af þeim á ég reyndar eftir að laga fullt).... jibbý....vonandi næ ég að klára fyrir miðvikudaginn..nú til að komast í almennilegt páskafrí gætu sumir spurt....en nei ...til þess að geta farið að læra allt hitt dótið..............það er gaman að læra...