mánudagur, febrúar 16, 2004

Ég er nú meiri sauðurinn eins og alltaf.. komst að því í dag...reyndar upp á mitt einsdæmi að maður á víst að skrá sig í kúrs 09.99.99 ef maður ætlar að útskrifast í júní....fór að spá í því hvort að maður þyrfti ekki að láta einhvern vita að maður ætti að útskrifast og jú,jú það passar...ég var samt fegin að sjá að ég er ekki eini sauðurinn...ákvað að tékka á símaskrá þeirra sem voru skráðir í þennann kúrs og komst að því að það eru nú einum of fáir í líffræðinni skráð í hann....einu nöfnin sem ég þekkti voru, Tobba, fanney, Yann, Marianne, Ingibjörg Helga, Guðrún Helga og ragga....Samkvæmt þessu þá eru góðvinir mínir Margrét og Snorri ekki að fara að útskrifast..hver veit kannski skemmta þau sér bara svona vel að þau ætla að skella sér ár í víðbót í líffræðina..en mín kenning er að þeir eru sauðir eins og ég :)