mánudagur, febrúar 10, 2003

Föstudagur
Ég varð fyrir morðtilraun á föstudaginn, ég var dreginn í Body Pump og síðan látinn gera milljón rassaæfingar... ég held að það hafi verið að reyna að gera útaf við mig.... Kannski vilja sumir ekki að ég fari með þeim út í sumar ??? Verð að kanna þetta mál betur... Ég er allavega enn með harðsperrur í þríhöfðanum, einn hausinn er að vísu búin að jafna sig en hinir eru en að deyja. Maður bölvar þessu en manni líður samt svaka duglegur þegar maður fær harðsperrur þá veit maður að það var tekið vel á...´Það var Kindakvöld um kvöldið og Erna eldaði bestu pítsu í heimi nammi nammi namm.. ég át og át... Við skruppum niður í bæ.. það var km biðröð á Hverfisbarinn þannig að við nenntum ekki þanngað fórum inn á sólon þar var skemmtileg tónlist en alltof mikið af fólki... þannig að við entumst þar ekki alltof lengi.. Fórum að rölta og reyna að finna einhvern annan stað til að fara inná en það var ekki hræða í bæmnum nema inn á þessum tveimur stöðum.. enda var leiðinleg tónlist á hinum stöðunum... Hversu heimskt þarf fólk að vera til að átta sig ekki á því að leiðinleg tónlist og fúlir skífuþeytarar sem segja að maður sé leiðinlegur þegar þeir eru beðnir um að skipta um tónlist ef engin er á dansgólfinu laða ekki beint fólk að... ( Við ernaerum einmitt í þessu einu sinni hjá Kalla Lú og nú forðumst við þá staði sem hann spilar á ... enda fílum við ekki tónlistina) ..