laugardagur, desember 13, 2003

Hæ,hæ
Jæja nú heldur próflesturinn áfram 1 próf búið og svei mér ef mér gekk ekki bara þokkalega...ég verð fegin þegar að þetta er búið .............bara 2 próf eftir eitt mjög auðvelt og HITT jæja mig langar ekki að hugsa um það....
Líf mitt sníst semsagt um það að læra þessa dagana...tók mér samt smá frí í gær og fór í frænkupartý hjá frænku hans Hauks... (ég er nú ekki beint frænka en mér er alltaf boðið með..:)) þar sem allir voru að fara að djamma..nema ég :)...þar var horft á Idol(brenglað NB) var ekki sátt..ekki frakar en fyrri daginn..var reyndar sammála um að Rann... væri ein af þeim sem ætti hugsanlega að fara en Common ekki hinar tvær..skil ekki fólk..afhverju geta ekki allir haft sömu skoðanir og ég :(
Horfði líka á Survivor er ég kom heim..og DJÖF..var þetta gott hjá stelpunum..sérstaklega eftir það sem þeir sögðu..ég verð að segja að kvennfyrirlitning karlmanna í Survivor er alveg til háborinnar skammar..mikið er ég fegin að búa á Íslandi ef að þetta er álit hins meðal jóa í Ameríkunni...
jæja best að fara að dífa sér í kerfisfræði blómplanta